Blog Layout

Félagsgjöld GSG 2024

Jan 08, 2024

Félagsgjöld 2024

Kæru félagar Stjórn GSG tekur undir með SA og verkalýðsfélögum landsins um að halda aftur af sér í gjaldskrár hækkunum. Á síðasta aðalfundi var ákveðið að hækka gjaldskrá um 8% og hefur stjórn GSG ákveðið að falla frá svo mikilli hækkun og hækka gjaldskránna einungis um 3% á milli ára.


Einnig kynnum við nýtt kerfi til að greiða félagsgjaldið. Félagsmenn þurfa nú að fara inn á https://www.abler.io/shop/gsg. Finna þar viðeigandi félagsgjald og ganga frá greiðslu. Allir félagar þurfa að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.


Varðandi hjónagjald þá þarf aðili 1 á heimilinu að skrá sig inn og ganga frá greiðslu viðeigandi félagsgjalds. Í framhaldi þarf aðili 2 að skrá sig inn og greiða viðeigandi félagsgjald. Í kaupferlinu hjá aðila 2 mun reiknast inn afsláttur þannig heildar greiðslan nemur hjónagjaldi.

Share by: